Sýnir færslur með efnisorðinu Ísland. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu Ísland. Sýna allar færslur

þriðjudagur, 14. október 2008

Til Þín í Neyð !

Guð og gæfa fylgi þér,
á lífsins vegferð þinni.
Jesús Kristur verndi þig,
á líkama sál og sinni.

Ísland Hið Nýja.

Í Jesús Kristi við sjáum ljós,
ljósið sem eilíft mun skína.
Hann elskar þig Ísland,
þú ástfagra land,
og alla íbúa þína.

Lýðveldið Ísland Hið Gamla.

Í vindinum blaktir lítið blóm,
sem þráir að verða stærra.
Af skuggum trjánna,það kveinkar sér,
og verður smærra og smærra.