föstudagur, 31. október 2008

Kúgarar.

Að kúga fólkið,það gaman er,

er þeirra æðsta gildi.

Þeir blindir eru á tilgang lífs,

og sitja í eigin gildru.

Garða djöfull með hnefanum,

hótar öllu illu.

Krefst af okkur gullsins,

sem kúgararnir stálu.

Hérna situr djöfullinn

og leikur mörgum skjöldum.

Satan Case Morgan og alþjóða,

að svikráðum standa með göldrum.

Sálar tötrið fjötrað er,

í dökkum myndum hugans.

Þeirra helsi stjórnar þeim,

svo aðrir fá ei frelsi.

Hræðsla þeirra djöfullleg,

sem aðrir fá ei að þekkja.

Þeir halda gjarnan mér og þér,

í ímynd eigin eigin huga.

Þinn illa óvin þú þarft að sjá,

sem er ætíð í illu ati.

Hann vélar gegn þér dag og nótt,

og heitir Illuminati.

Kúgarar gengu harðast fram,

með gullin loforð á vörum.

Þeir sitja eftir,allir sem einn,

þegar við fólkið,.........förum.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Það er margt í gangi í hausnum á þér sé ég.